Verkefni
og Sýningar
2026
Sirkusmolar
- brakandi fersk nýsirkussýning þar sem hver moli kemur á óvart
Sirkuslistafélagið Hringleikur snýr aftur með aðra útgáfu af Sirkusmolum, stútfulla af nýjum atriðum! Í gegnum tungumál sirkuslistanna leikur listafólkið sér með myndir af mismögulegum veruleikum og hughrifum ólíkra framtíða.
Sýningaröðin Sirkusmolar veitir innsýn í það ferskasta úr íslensku sirkuslífi og veitir hérlendu sirkuslistafólki tækfæri til að setja á svið hugmyndir sínar og þróa nýtt efni og atriði - svo hér má sjá ferskustu kræsingar sirkusheimsins! Hvort sem er ljóðræna loftfimleika á heimsmælikvarða, skens og glens, ótrúlegan styrk eða þá bara eitthvað mjög skrítið - þá er aldrei að vita hvað kemur næst upp úr pokanum.
Sýningin hentar áhorfendum á öllum aldri og byggir takmarkað á töluðu máli.
Sirkuslistafólk - flytjendur og höfundar atriða: Thomas Burke, Bryndís Torfadóttir, Urður Ýrr Brynjólfsdóttir, Álfrún Haraldsdóttir, Alejandro Bencomo, Sophie Kass, Sally Cowdin, Jón Sigurður Gunnarsson
Listrænn stjórnandi: Lauren Charnow
Framleiðsla: Eyrún Ævarsdóttir og Thomas Burke
Shjówmenn
Sirkussýning um sjómennskuna
Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið.
2025
Sirkusmolar
Þú veist aldrei hvað gerist næst!
Sirkusmolar er glæný sirkussýning úr smiðju Hringleiks. Sýningin er í kabarett stíl þar sem fremsta sirkuslistafólk landsins fléttar saman loftfimleikum, akróbatík, dansi, gríni og drama í gómsætan konfektkassa þar sem hver moli kemur á óvart.
2024
Sæskrímsli
Togari sem var á veiðum rétt fyrir utan landgrunninn fékk risavaxna og áður óþekkta lífveru í trollið. Skömmu síðar varð hann vélarvana og sendi út neyðarkall. Togarinn hefur nú verið dreginn í höfn. Á meðan beðið er eftir viðbrögðum vísindamanna við þessu furðufyrirbæri gefst almenningi einstakt tækifæri til þess að berja ferlíkið augum. Eru sæskrímsli úr þjóðsögum okkar komin fram í dagsljósið og hvaða skilaboð hafa þau okkur að færa?
Sirkuslistahópurinn Hringleikur og leikgervastúdíóið Pilkington Props leiða hér saman hesta sína í nýju íslensku götuleikhúsverki.
Sýningin er 45 min
Sýningin Sæskrímslin var pöntuð sérstaklega af Lisstahátíð í Reykjavík og verkefnið styrkt af:
Sóknaráætlun Norðurland eystra, Vestfjarða, Austurlands
Barnamenningarsjóður íslands
Stjórnarráð Íslands - Menningar og viðskiptaráðuneytið
Menningarstofa Fjarðarbyggð
Múlaþing
Samstarfsaðilar :
Skrímslasetrið á Bíldudal, List fyrir alla, menningarfulltrúi SSV, Vestfjarðastofa, menningarfulltrúi SSNE, Menningarstofa Fjarðabyggðar, Austurbrú og verkefnastjóri menningarmála, Faxaflóahafnir, Akraneskaupstaður, Ísafjarðarbær, Norðurþing, Fjarðabyggð, Sláturhúsið á Egilsstöðum, Safnahúsið á Húsavík, Byggðasafn Vestfjarða og listahátíðin Innsævi.
2023
MegaWHAT?!
MEGAWHAT?! - tilraunakennt sirkuslistaverkefni fyrir alla fjölskylduna þar sem öfl náttúrunnar birtast gestum Elliðaárstöðvar í furðulegum heimi sirkus og vísinda. Sirkushópurinn Hringleikur setur hér upp nýja og skemmtilega nýsirkussýningu í spennandi umhverfi Elliðaárstöðvar, gömlu rafstöð Reykvíkinga.
Í MEGAWHAT?! kynnast áhorfendur litríkum hópi íbúa í Elliðaárstöð sem sýna þeim þá töfra sem búa í náttúruöflunum. Hvað gera þau sér til skemmtunar? Er hægt að snúast endalaust? Hvernig helst húllahringur uppi? Er hægt að halda jafnvægi á hverju sem er?
Aðstandendur MEGAWHAT!?
Sirkuslistafólk: Jóakim Kvaran, Bryndís Torfadóttir, Thomas Burke, Bjarni Árnason,
Axel Diego, Eyrún Ævarsdóttir
Tónlist: Linus Orri Gunnarsson Cederborg
Leikstjórn: Hallveig Kristín Eiríksdóttir
Búningar og sviðsmynd: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir
Verkefnisstjórn og framleiðsla: Hringleikur og Elliðaárstöð
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði, Sviðslistasjóði og Listamannalaunum og er unnið í samstarfi sirkuslistafélagsins Hringleiks og Elliðaárstöðvar.
2022
Just try it - Vilt þú prófa?
Þetta verkefni var samstarf á milli Bocirk og Hringleiks. Verkefnið snérist um að koma með sirkuslistir til nemenda sem hafa ekki tök á því að fá reglulegar æfingar í sirkus. Stutt lýsing af verkefninu, 8 listamenn (4 frá Íslandi og 4 frá Tékklandi) bjuggu til kennslustundir fyrir nemendur og gagnvirka samtíma sirkus sýningu þar sem tveir nemendur voru valdir sem eitt af aðalhlutverkum sýningarinnar. Verkið ferðaðist í heildina í 4 skóla á íslandi og 8 skóla í Tékklandi.
2021
Allra veðra von
Frumsýnd sumarið 2021 sýninguna Allra veðra von, í samstarfi við Miðnætti leikhús, Tjarnarbíó og Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði.
Sýningin var sýnd á fjölum Tjarnarbíós í maí 2021 og ferðaðist um allt land sem nýstárleg útisýning í kjölfarið.
Allra veðra von hlaut Grímuverðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins 2021.
Framleiðsla sýningarinnar er styrkt af Sviðslistasjóði, Launasjóði listamanna, Uppbyggingasjóði Austurlands og Reykjavíkurborg.
Sýningarferðalag um landið 2021 var styrkt af Uppbyggingasjóði Austurlands, Norðurlands Eystra, Vesturlands og Suðurnesja.
Leikhópur / Höfundar: Bryndís Torfadóttir, Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Meyvant Kvaran, Nick Candy, Thomas Burke
Leikstjórn: Agnes Wild
Búninga- og sviðsmyndahöfundur: Eva Björg Harðardóttir
Tónlistarstjórn og frumsamin tónlist: Sigrún Harðardóttir
Ljósahönnun: Friðþjófur Þorsteinsson
Framkvæmdarstjórn: Karna Sigurðardóttir
Aðstoð við sviðshreyfingar: Jouliette Louste
2020
Klúbbur Listahátíðar í Reykjavík
Hringleikur fyllti Iðnó af sirkuslistum í heila viku sem hluti af Klúbbi Listahátíðar í Reykjavík sumarið 2020.
Barnamenningarhátíð Reykjavíkur 2022-2026
Hringleikur hefur tekið þátt í opnunar atriði Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur
Sumargleði
Sýningin Sumargleði er útisýning, uppfull af loftfimleikum, djöggli, töfrum, gríni og glensi, og hentar vel á ýmsar hátíðir og skemmtanir, s.s. bæjarhátíðir og fjölskylduskemmtanir.
Sýningin var sköpuð í samstarfi við Reykjavíkurborg covid-sumarið 2020 og var sýnd á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2021, með stuðningi Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar og Hafnarfjarðarbæjar.
Hringleikur vinnur að því að auka gæði og faglega þróun sirkuslista með því að þjóna sirkuslistafólki á breiðum grundvelli og vinna að auknum sýnileika.
Hringleikur hefur undanfarin ár stimplað sig rækilega inn í menningarflóru borgarinnar sem og landsmanna allra. Félagið hefur staðið fyrir fjölda verkefna - sjálfstætt og í samstarfi við Reykjavíkurborg og ýmsa samstarfsaaðila, sem hluti af menningarlandslagi borgarinnar (nýsirkusverkefnið MEGAWHAT!?, Barnamenningarhátíð, Menningarnótt, Listahátíð í Reykjavík, sirkuslistahátíð Hringleiks - Flipp festival o.fl.), sem og um landið allt (t.a.m. sýningarferðalag Allra veðra von, samstarf við List fyrir alla, Listagjöf Listahátíðar, BRAS menningarhátíð barna á Austurlandi o.fl.). Hringleikur vinnur nú að opnunarverki Listahátíðar í Reykjavík, götuleikhúsverkinu Sæskrímslin, sem frumflutt verður 1. júní nk., og unnið er í samstarfi Hringleiks við Pilkington Props, MurMur Productions og Listahátíð í Reykjavík.