Sirkustorg
Þar sem allt getur gerst!
Sirkustorg er fjölskyldudagur í nýuppgerðri Elliðaárstöð þar sem óvænt sirkusatriði, sýningar og viðburðir poppa upp yfir daginn. Þetta er frábært tækifæri til þess að sjá þverskurð af því hvað sirkuslistafólk er að gera á Íslandi á einum stað. Búast má við að sjá fjölbreyttar sirkuslistir á borð við loftfimleika, ráfandi sæskrímsli, trúðaleik, akróbatík og jafnvel eitthvað sem hefur ekki sést áður á Íslandi. Einstök en afslöppuð upplifun sem enginn ætti að missa af, tilvalið fyrir fjölskyldur sem vilja verja huggulegum degi í Elliðaárdalnum! Auk sirkusatriða býður Elliðaárstöð upp á frábæran leikvöll, skemmtilegar gönguleiðir í fallegri náttúru og ný-opnaða kaffihúsið Elliða. Dagsetning: 1. júní kl. 13:00-16:00 Staðsetning: Elliðaárstöð - Veitutorg Aldur: allur aldur Aðgangur ókeypis og öll velkomin. [ENGLISH] The Circus Square Where anything can happen! Sirkustorg is a family day at the newly renovated Elliðaárstöð, where unexpected circus acts, performances, and events pop up throughout the day. This is your chance to see multiple circus events in one place. One can expect to see a variety of circus arts such as aerial acts, roaming seamonsters, clowning, juggling, meet some seamonsters, and something that has never been seen before in Iceland. A unique yet relaxed experience that no one should miss, perfect for families looking to spend a lovely day in Elliðaárdalur! In addition to circus acts, Elliðaárstöð offers a fantastic playground, enjoyable hiking trails in beautiful nature and the newly opened café Elliði. Date: June 1st at 13:00-16:00 Location: Elliðaárstöð Age: all ages Free entry and all welcome! |