Sirkusmolar - Hringleikur
Sirkusmolar - Forsýning
Þú veist aldrei hvað gerist næst! Sirkusmolar er glæný sirkussýning úr smiðju Hringleiks. Sýningin er í kabarett stíl þar sem fremsta sirkuslistafólk landsins fléttar saman loftfimleikum, akróbatík, dansi, gríni og drama í gómsætan konfektkassa þar sem hver moli kemur á óvart. Um er að ræða tilraunakennt hlaðborð sem enginn unnandi sirkuslista ætti að missa af, uppfull af nýjum og ferskum sirkusatriðum! Sirkuslistafélagið Hringleikur var stofnað vorið 2018 af hópi sirkuslistafólks með það að markmiði að kynna Íslendinga fyrir fjölbreyttri sirkusmenningu og styrkja sirkusstarfsemi hérlendis. Hringleikur hefur staðið fyrir fjölda sýninga og verkefna, bæði sjálfstætt og í samstarfi við lista- og menningarhátíðir, sem og fjölbreyttar menningarstofnanir og sveitarfélög um allt land. Sirkusmolar verður frumsýnd í Tjarnarbíó haustið 2025. Dagsetning: föstudagurinn 30. maí kl. 20:00 Staðsetning: Tjarnarbíó Verð: 4.500 kr. Lengd verks: Um 60 mínútur. Fyrir hvern: Alla aldurshópa, 9 ára og eldri. Tungumál: Byggir ekki á töluðu máli [ENGLISH] Sirkusmolar - Preview You never know what you’re gonna get Sirkusmolar is a new contemporary circus show from Hringleikur. The show is an act based performance where Iceland's most experienced circus artists weave together aerials, acrobatics, dance, comedy and drama in a delicious box of candies where each piece will surprise and delight. Sirkusmolar is an experimental buffet of circus that no circus lover should miss. Hringleikur Circus Company was founded in the spring of 2018 by a group of circus artists with the goal of introducing Icelanders to diverse circus culture and strengthening circus activities in the country. Hringleikur has organized numerous projects, both independently and in collaboration with arts and cultural festivals, as well as various cultural institutions and municipalities across the country. Sirkusmolar will be premiered in Tjarnarbíó fall 2025. Date: Friday May 30th at 20:00 Location: Tjarnarbíó Theatre Price: 4500 ISK Duration: About 60 minutes. Age: All age groups, 9 years and older. Language no problem |