Velkomin í sirkusinn!
Sirkuslistahátíðin Flipp Festival er haldin dagana 29. maí til 1. júní 2025 í Tjarnarbíó og Elliðaárstöð í Elliðaárdal – og þér er boðið með! Þema hátíðarinnar í ár er Sirkusinn og ég – en spurningin sem við veltum upp er: Hvernig tengjumst við sirkuslistum sem áhorfendur, listafólk, iðkendur… og draumórafólk sem hugsar stórt? Sirkuslistir hafa blómstrað á Íslandi á undanförnum árum og skapað nýjan vettvang fyrir tjáningu, hreyfingu og samfélag. Við erum enn að uppgötva hvað sirkusinn er fyrir okkur – og hvað hann getur orðið! Á Flipp Festival gefur að líta brot af því besta sem íslenski sirkusheimurinn hefur upp á að bjóða þessa dagana – allt frá kraftmiklum sýningum atvinnufólks yfir í skapandi atriði áhugafólks, auk þess sem boðið er upp á sirkussmiðjur þar sem forvitnir geta spreytt sig. Það er eitthvað fyrir öll á Flipp Festival! Lifi sirkus! |